Blogg Helga og Hrannar
16.11.2006 23:05:58 / Helgi

bloggkveðja

Jæja ágæta fólk, ég held bara að ég slútti þessu í bili. Þar sem við erum búin að opna barnalandssíðu og dágóður tími fer í að setja inn myndir þar og sá tími þegar Freydís sefur á daginn fer yfirleitt í það að æfa sig eða sinna húsverkum þ.e. þegar við erum ekki á ferðinni og köldverkin yfirleitt felast í því að slaka á...og að við höfum líka ýmsu að sinna námslega og vinnulega séð fyrir utan það og að við eigum yndislegustu dóttur í heimi sem þarf og við viljum sinna af hjartans getu og lyst ætla ég að segja skilið við bloggsíðuna, allavega í gott bil-i
Góðar stundir og kíkið endilega á dísina fögru
Hrönnsla

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 21:10:07 / Helgi

kjötkveðjuhátíð

Ég var svona að spá...ætli stinguflugur hafi kjötkveðjuhátíð á haustin, þegar þær vita að nú fer veturinn að ganga í garð? Þá flykkjast þær kannski inn í híbýli og keppast um að fela sig á bestu felustöðunum sem þær geymdu allt sumarið til að þær fyndust örugglega ekki þegar grandalausir íbúar ganga hringinn með hjólaljósið og leita í öllum hornum áður en gengið er til náða? Þær hópast kannski við dyrnar að veröndum íbúa þegar skyggja tekur og smeygja sér inn þegar smuga gefst og hristast af hlátri og nugga saman fótum af spenningi. Þegar kjötkveðjuhátíðin hefst í skugga nætur skemmta þær sér við að finna sem skemmtilegustu staði á holdi íbúa..þetta verður jú kannski síðasta skipti fyrir veturinn..skapa listaverk, gjörning. Sem dæmi má nefna að stinga íbúa beint á milli augnanna svo að nefið bólgni svo ekki sést í augnkróka og íbúi lítur út eins og með fáránlega langt á milli augna og svipar til Klingona úr Star Trek. Annað listaverk er að stinga beint á hægra kinnbein svo að íbúi líti út eins og með ofvaxið kinnbein, há kinnbein eru æsandi en eitt hátt kinnbein er SECHSÍ. Áður en annar íbúi getur hlegið sig máttlausan og kallað íbúa eitt litla klingonan sinn er hann stunginn á báða olgnboga og getur því eigi setið með hendur studdar á borð sem nauðsynlegt er við tölvuskrif eða annað! Hahh þarna náði kjötkveðjuhátíðin hápunkti sínum...ARG
Hrönn

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 20:02:12 / Helgi

Nýjar myndir

Fyrir þá sem áhuga hafa, eru komnar inn nýjar og nýlegar myndir af Freydísinni fögru.

Bara að klikka á albúm á     klikka hér > síðunni hennar  < klikka hér

Kv,

H

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 09:19:18 / Helgi

skiptileikur

Ég hvet alla til að kíkja á þessa síðu http://einlitillyklakippa.blogspot.com/ og ef þið eigið eitthvað vænlegt til skiptanna hikið ekki við að hafa samband. Þetta er hann Óskar brósi sem byrjaði á þessu ári á skiptileiknum og takmarkið er að koma og heimsækja systur sína til Þýskalands.. áfram Skari, jú kan do it!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 16:49:30 / Helgi

barnalandssíða

Jæja þá, blóð sviti og tár...það tekur tíma að stilla, flokka, velja og skíra myndir og annað slíkt þegar búin er til síða fyrir Freydísina. Ég er búin að eyða þónokkrum kvöldstundum í síðuna og hér er afraksturinn.
http://www.barnaland.is/barn/52584
Ég skil núna systkini mín þegar ég var að nöldra yfir leti þeirra við að setja inn nýjar myndir....þegar börnin sofna loks yfir daginn eða á kvöldin þá er margt annað á döfinni líka en að setja inn myndir :)
Ég er þó ekki búin ennþá, eftir eru skírnarmyndir og sept/okt myndir og myndbönd
Hrönnsla



» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 18:59:16 / Helgi

hjólavagn

Ég er að koma smám saman upp síðu á barnalandinu góða, þá koma fullt af nýjum og gömlum dúllulegum myndum.
Skólinn minn er byrjaður, ég er búin að fara einu sinni heilan dag í burtu og fannst mér þegar ég kom heim eins og Freydís hlyti að hafa gleymt mér....en svo var nú ekki!
Sjáum til hvort svo verði áfram þegar ég gisti eina nótt í Stuttgart.
Annars er lífið komið í fastar skorður á ný, litla töffarafamilían í Sonnhalde er hamingjusöm og það sem helst er nú á dagskrá er að kaupa sér hjólavagn til að við mæðgur og mæðgin auðvitað líka getum þeyst um borg og bí. Ég get ekki mikið lengur haft úthald í troðning í strætó og sporvögnum og horft á pirruð gamalmenni sem taka ekkert tillit til barnavagna tuða út í eitt! Svo er líka bara miklu skemmtilegra að hjóla.
Hlakka til þess.
Hrönnsla


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 23:06:13 / Helgi

heim

Þá erum við komnar út aftur, 3 píur mættar í Sonnhalde, ég, Freydís og Gulla tengdó, ferðalagið var langt og var ég mjög fegin að Gulla gat komið með út en Freydís litla var svo góð að það var alveg ótrúlegt. Hún svaf nánast ekkert alla ferðina, og þrátt fyrir þreytu og pirring á stöðugum þeytingi út úr flugvél, rútum lestum og leigubílum var alltaf stutt í brosið..talandi um brosið, litlu konu finnst móðir sín óstjórnlega fyndin....sem er náttúrulega ekkert skrítið...en áðan þegar við komum heim úr bænum byrjaði hún að hlæja að mér bara þegar ég leit á hana og brosti. Hún hló og hló og hló sama hvað ég gerði, og þá er ég að tala um ha ha ha ha skrík skrík skrík hlátur í örugglega korter. Jesús hvað það er yndislegt :lol: einlæg og hundrað prósent aðdáaun í minn garð! ó já
T.d. á morgnanna vakna ég nánast undantekningalaust við lágt hjal sem verður svo háværara með skemmtilegum prumphljóðum og tónskölum upp og niður, þegar ég stend svo upp og kíki yfir í rúmið skellir hún upp úr af gleði við að sjá mig. Er eitthvað yndislegra til en þetta!!?
Í vikunni höfum við verið að spássera í góða veðrinu um bæinn, komið kennslunni í gang, og haft það ósköp gott. Það vantar bara pabba rabba en því verður kippt í lag á morgunn, ví
Þá kannski druslast maður til að koma síðu Freydísar í gang og hætta þessari leti
Hrönnsla

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 09:49:01 / Helgi

lítil frænka komin í heiminn

Ég er búin að eignast litla frænku sem fengið hefur nafnið Eyrún. Sif systir eignaðist prinsessu nr. 2 á laugardaginn 16. september. Hún er voða lík stóru systur sinni og er algjör mús. Ég get svo svarið það að þrátt fyrir að stærð og þyngd sé næstum eins og Freydís var þegar nún fæddist getur ekki verið að mín kona hafi verið svona lítil dúkka!! Jeminn hvað maður er fljótur að gleyma. Sif heldur áfram að sverja sig í ættina en hún skveraði þessu af á mettíma og það standandi... pabbi segir að konur eins og við sem eigum svona auðvelt með meðgöngu og fæðingu eigum að eiga minnst 8 börn....tja. Barnabarnalán pabba og mömmu ætlar engan endi að taka og eiga þau fullt í fangi með að meðtaka þetta allt saman :lol:

Hrönnsla


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 20:51:38 / Helgi

bilað móðureyra

Ísafoldartörnin var skemmtileg og lærdómsrík eins og alltaf, sérstaklega nú þegar upptökur voru því í þeim pakka voru mjög intensívar lotur og því reyndi á hópandann :) og mig líka því ég verð nú að viðurkenna að það var dulítið meira álag að eiga pínulítinn grísling heima og svo veiktist Helgi í ofanálag í lokatörninni... Jeminn eini, en auðvitað hófst þetta allt að lokum en haldiði ekki að móðureyrað hafi bilað í fyrsta sinn daginn eftir að öllu lauk. Það sem mér brá þegar ég vaknaði um morguninn við að Helgi stóð með hana í fanginu og ég hafði ekki vaknað við hjalið hennar en það hefur aldrei áður gerst! Reyndar kom svo í ljós að móðureyrað var orðið nokkuð stíflað því mér fannst öðru megin vera endalaus hella svo ég skellti mér til heimilislæknis. Hann kíkti og sagði "Nohh þú ert bara full of shit" Hmm skemmtilegur læknir það og sýndi mér stoltur stærðarinnar köggul sem hann dró út. Ojjj hefði alveg viljað sleppa þeirri sjón, svipað og með fylgjuna!! he he
Svo var Freydís skírð í gær í stórskemmtilegri fjölskyldumessu í Bústaðarkirkju, við höfðum hugsað okkur að það hentaði ágætlega að hafa kirkjuna fulla af börnum ef kona litla skyldi vera ósátt en hún sagði ekki múkk allan tímann, sennilega fundist nóg um lætin í hinum börnunum..Nokkuð skondið fannst mér einn guttinn sem heyrðist segja eftir að ég tilkynnti nafnið hennar "hey næstum því, ég giskaði á Tara Dís"
Nú blasir við okkur mæðgunum 2 vikna afslöppun áður en haldið verður út á ný.

Hrönnsla


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 22:34:09 / Helgi

æfingabúðir

Það er svo yndislegt að vera á Vestfjörðum, Ísafjörður er ótrúlega vinalegur bær, gott að vera hér.Freydísi finnst fjallaloftið greinilega gott því hún er allt í einu orðin morgunhani og tók upp á því frá fyrsta degi að vakna klukkan hálf 6 og virðist ekkert ætla að breyta því. Æfingar Ísafoldar standa sem hæst og aðeins 2 dagar í tónleika, gaman gaman. Freydís er að verða selskapsmanneskja enda með fjölda manns í kringum sig á hverjum degi og svei mér þá bara farin að róast heldur en hitt við tónlistina sem hér hljómar, má sjá á því að t.d. í dag þegar Helgi kom með hana inn í sal þar sem allir voru að hita upp og hver spilaði sitt í háværri súpu var hún hin rólegasta en þegar gengið spilaði í smá gríni byrjunina á Also sprach Zarathustra (brass hávaði mikill) kom djúúúúp sveigja á munnvikin niðrá við og þá var gamanið búið...æ litla mýsla. Kannski spurning um að vera ekkert humma fljúga hvítu fiðrildin á kvöldin heldur tékka á vorblótinu eða eitthvað álíka....tja! Annars er hún búin að standa sig vel á ferðalögum milli landa og landshorna nýorðin 3ja mánaða, ekki hægt að segja annað, litla prinsessan

ta ta
Hrönnsla

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 09:05:38 / Helgi

heim

Nú erum við búin að vera heima í viku. Fyrsta vikan fór í að knúsa ættingja og venjast heimkomu og bíða eftir pabba sem kom á miðvikudaginn. Freydís var algjört draumabarn í flugvélinni, sofnaði í Baby Björn magapoka á maganum á mér fyrir flugið og svaf þangað til að ég rúllaði töskunum út í Keflavík. Sennilega sniðugt að fara í kvöldflug með svona lítinn böggul. Ég sá svo þvílíkan mun á minni konu, held að hitinn úti hafi verið pínu erfiður fyrir hana, enda rúmlega 30 gráður í nokkrar vikur fyrir heimför. Nú er hún miklu rólegri, sefur meira og bara algjört englabarn sem hlær framan í alla. Talandi um hlátur, hún er farin að hjala og hjala en hefur bara brosað út að eyrum hingað til og másað eins og glaður hundur ;) en í gærkvöldi lá hún á leikteppinu í fíling, rak ég þá smettið á mér framan í hana og viti menn...hún skellihló með skríkjum, jihh minn hvað mér brá og fékk ég tár í augun af gleði! Svo gaman.

Nú er Helgi kominn í feðraorlof því brátt hefjast æfingar Ísafoldar og því mamma litla nokkuð upptekin, en það verður mikið stuð hjá Freydísi því hún fer aðeins 3 mánaða gömul upp á dag í sína fyrstu tónleikaferð :lol:

Hrönnsla


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 21:26:34 / Helgi

flugdís

jibbí ekki á morgunn heldur hinn fær Freydís að kynnast Íslandi og öllu því skemmtilega fólki sem þar býr, við erum mjög spenntar... Við höfum verið að gera ýmislegt, Freydís er orðin miklu meðfærilegri og því ekkert mál t.d. að skella sér í bæinn, fara í matarboð eða hitta mömmuvinkonur hér og þar. Mér finnst reyndra erfitt að pína greyið ofan í vagninn því hitinn er nálægt suðumarki úti fyrir en við mæðgur höfum lifað það af þrátt fyrir sveittar fellingar og mikinn þorsta..
Við erum að vinna í því að gera barnasíðu og hætta þá þessu bloggi, ég býst samt við því að það verði ekki fyrr en í haust, ta ta, hlökkum til að sjá alla
P.s. nokkrar nýjar og minna nýjar myndir á Freydísar síðu
Hrönnsla

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 21:10:13 / Helgi

Kalli litli könguló

Ungfrúin fagra er tveggja mánaða í dag..vuhú
Það er áfram sviti og hiti og aumingja Freydís litla er sveitt í fellingunum sínum daginn út og inn..Við erum búnar að gera ýmislegt undanfarið, jú það er alltaf jafn spennandi að leggjast í rúmið og fylgjast með óróanum og hlusta á Gute Nacht e. Brahms í spiladósinni sem hangir yfir rúminu, leika við bangsana, þ.e. horfa á þá, setjast í stólinn og horfa á stjörnurnar sem blikka, hlæja endalaust að fyndnu mömmunni sem grettir sig og lætur eins og fífl til að uppskera breitt bros, uppáhaldið nú er Kalli litli könguló með tilheyrandi handahreyfingum og knúsi, þá skellihlær mín kona og iðar öll, alltaf jafn gaman. Svo hittir hún reglulega Lorenz (tröllabarnið) og tvíbbana Lenyu og Ben í mömmukaffi.

Við erum á leið til Íslands við Freydís, komum 23. júlí, Helgi nokkrum dögum síðar,hlökkum að sjálfsögðu mikið til, Freydís þeim mun meira því hún mun jú koma í fyrsta sinn til síns heimalands...Ísland farsælda frón..talandi um það, ég hálfskammaðist mín fyrir hversu mikið af textum hafa lekið úr höfði mínu, ég nennti nú ekki að syngja stöðugt Sigga litla systir mín og svoleiðis og ætlaði að sækja í gömlu kórhirslu heilans en komst að því að hún hefur að stórum hluta verið strokuð út, ég þurfti að fletta upp á netinu textunum !!
Hrönnsla



» 6 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 23:08:05 / Helgi

hiti sviti og fótbolti

Mikið óskaplega er ég fegin að búa í frystiklefa á þessum vikum. Við Freydís höfum haft það gott inni hjá okkur á meðan hitar hafa herjað á okkur. Ekki ætla ég þó að kvarta mikið yfir heitu veðri því bannað er að bölva sólinni og eftir skamman tíma munum við njóta veðurblíðunnar á Íslandi...ehh einmitt það já, en semsagt þegar við höfum þurft út, þarf prinsessan að liggja í vagninum með skyggni og flugnanet yfir svo að greyið liggur í móki inn undir öllu saman á stuttermasamfellu... Við Freydís skruppum með barnavinkonum í ansi spes en yndislega rólegan prívatgarð eða prívatsetur rétt hjá okkur. Við höfum oft gengið fram hjá skógarvegi þar sem sést í skúr með stórum stöfum : Licht, Luft, Bad, ljós, loft, laug
Það er há girðing umhverfis og ómögulegt að sjá inn. Hægt er að gerast meðlimur og fá lykla af herlegheitunum og ein af barna"píunum" er meðlimur. Þegar inn var komið blasti við í annars vel þröngu og skipulögðu hverfi óvænt risa grænt svæði með leiktækjum, sturtuaðstöðu og klósetti og lítilli laug eins og klippt út úr gömlum þýskum heimildarmyndum frá 1930. Vantaði bara fólk skoppandi um með sundhettur og sólhlífar í fíling.
Annars er sorglegt að Þýskaland sé dottið út úr HM, þá minnka stöðugar fréttir óðra fréttamanna um hið sanna eðli Þjóðverja sem loks sé að koma fram, að þeir séu í raun þökk sé fótbolta, mannlegir, einlægir, sanngjarnir, og ekki til nískir, glaðlegir, fyndnir, miklir gestgjafar o.s.fr., voðalega höfðu þeir lítið sjálfstraust fyrir!! Æ þessi fréttamennska er stundum svo ótrúlega ýkt, losna loks úr viðjum seinni heimstyrjaldar, þora að vera stoltir af þjóðerni sínu...gott og blessað! Mér hefur alltaf fundist þeir vera ágætir, burtséð frá fótbolta....Talandi um fótbolta, Helgi ætlaði að kaupa hinn svalandi og ómissandi Becks Gold fyrir fótboltaleik en kom að tómri hillu, var svo tjáð að hann væri gjörsamlega uppseldur, ekki einsdæmi vegna ótrúlegrar sölu fyrir og á HM!!!
Detta mér allar....í bjórlandinu!!
Hrönnsla
P.s. nýjar myndir

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 19:25:06 / Helgi

draumadís

Spennan magnast, þýska stálið stóðst vítispressuna og vann Argentínu...það var ótrúlegt að heyra fagnaðarlætin sem bárust alls staðar að þegar ljóst var að Þýskaland hefði unnið! Ég hefði líka öskrað ef ég hefði ekki haft Freydísi á arminum :) Ég hefði bara helst viljað vera á Fan Meile í Berlín...
Á föstudaginn, barasta yfir nótt breyttist grátdís í draumadís....jú auðvitað hefur Freydís alltaf verið draumadís en hún umbreyttist. Hvað olli því veit ég eigi en við fórum með hana í bæinn fyrir leikinn á föstudaginn og mín barasta pollróleg í vagninum og horfði á Róbert bangsa með aðdáun, og lagði sig svo. Helgi fór með hana á undan mér í bæinn og prófaði Baby Björn burðarpokann og sagðist aldrei hafa fengið eins mikið, æ og ohh og kjamms og smask og bros frá kvenmönnum, greinilegt að það er ekki algengt hér að sjá karlmann með ungabarn framan á sér...
Yfir leikjunum hjá Danna og matnum horfði hún bara á umhverfið eða okkur til skiptis, kvartaði aðeins yfir svengd þegar svo bar undir en annars algjer draumur. Hmm kannski hefur hún bara verið stressuð yfir HM og hver örlög Þjóðverja yrðu og er að slaka á núna!!! Það eða að hún hafi fundið hina einu sönnu tónlist við sinn smekk því Helgi fjárfesti í góðu diskaboxi sem hefur hljómað daginn út og inn úr hátölurunum þar sem Fritz Wunderlich fer mjúkum höndum eða segjum kannski mjúkri röddu um hvaða tegund tónlist sem er. Þvílík rödd, þvílíkur snillingur.
Hrönnsla

Ps. nýjar myndir komnar inn, sjá tengil neðarlega, vinstra megin.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20